Viðskipti
| mbl
| 3.4.2009
| 8:37
Flowers sýnir Kaupþingi í Lúx áhuga
Bandaríski fjárfestingasjóðurinn J. C. Flowers hefur sýnt áhuga á að yfirtaka Kaupþing í Lúxemborg, samkvæmt frétt vikuritsins Letzebuerger Land í Lúxemborg í dag. Þegar Kaupþing ætlaði að kaupa hollenska bankann NIBC var það Flowers sem seldi Kaupþingi hluti sína í NIBC. Hætt var við yfirtökuna í janúar 2008.
Greiðslustöðvun Kaupþings í Lúxemborg var framlengd í gær um tvo mánuði, til 9. júní nk. Lánadrottnar bankans höfnuðu í síðasta mánuði áætlunum um endurskipulagningu hans en fjárfestingarsjóður í eigu líbýskra yfirvalda hefur sýnt áhuga á að taka Kaupþing yfir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















