Viðskipti
| mbl
| 3.4.2009
| 17:54
Íslandsbanki yfirtekur innstæður Straums
Íslandsbanki hefur í dag yfirtekið innstæður Straums Burðarás fjárfestingabanka hf. vegna innlána í höfuðstöðvum bankans á Íslandi. Innstæður bankans flytjast yfir til Íslandsbanka miðað við stöðu og áunna vexti á yfirtökudegi. Allir skilmálar umræddra innlána um tímalengd, vaxtakjör, mynt o.þ.h. halda sér óbreytt gagnvart Íslandsbanka hf.
Straumur - Burðarás fjárfestingabanki hefur gefið út skuldabréf sem endurgjald fyrir hinar yfirteknu innlánsskuldbindingar og eru eignir Straums veðsettar til tryggingar fyrir skuldabréfinu.
Þá hefur Íslandsbanki veitt Straumi Burðarás lán til að fjármagna skuldbindingar Straums við innlánseigendur bankans í Danmörku.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















