Viðskipti
| Morgunblaðið
| 3.4.2009
| 6:44
Sigurmar skipaður skiptastjóri Pennans
gretar@mbl.is
Undir Pennann heyra verslanir Eymundsson, Griffill, Bókabúð Máls & menningar, Islandia og Saltfélagið. Nýja Kaupþing tók yfir rekstur Pennans fyrir um hálfum mánuði.
Sala eins fljótt og hægt er
„Ég veit af því að Nýja Kaupþing vill að rekstur Pennans og þeirra fyrirtækja sem undir hann heyra haldi áfram, enda hefur bankinn mestra hagsmuna að gæta af því. Þá geri ég jafnframt ráð fyrir því að bankinn hafi notað tímann frá því hann tók við rekstrinum til að kortleggja hvernig hægt sé að selja hann. Hins vegar liggur fyrir að bankinn hefur fengið kunnáttumenn til að meta virði eignanna,“ segir Sigurmar.Hann segist gera ráð fyrir að Penninn og fyrirtæki hans verði væntanlega komin í hendur áhugasamra kaupenda fljótlega.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















