Stoðir óska eftir nauðasamningum

Jón Ásgeir Jóhannesson og Jón Sigurðsson. stækka

Jón Ásgeir Jóhannesson og Jón Sigurðsson. mbl.is/Ómar

Stoðir (áður FL-Group) hafa óskað eftir heimild Héraðsdóms Reykjavíkur til að leita nauðasamninga við kröfuhafa sína. Lánardrottnar félagsins, sem fara með 86% af fjárhæð krafna á hendur félaginu, styðja að Stoðir vinni áfram að fjárhagslegri endurskipulagningu sem meðal annars felur í sér að félaginu verði veitt heimild til að leita nauðasamninga.

Eignir metnar á 70-80 milljarða en skuldir 287 milljarðar

Gert er ráð fyrir núverandi hlutafé félagsins verði afskrifað að öllu leyti og kröfuhafar félagsins verði eigendur alls hlutafjár í Stoðum.

Stoðir hafa verið í greiðslustöðvun síðastliðna sex mánuði, síðan stærsta eign félagins, 32% eignarhlutur í Glitni að verðmæti 75 milljarða króna, varð verðlaus. Eignir Stoða eru nú metnar á um 70-80 milljarða króna og hafa lækkað um u.þ.b. 160 milljarða króna sl. sex mánuði.

Skuldir Stoða eru nú áætlaðar um 287 milljarðar króna og hafa hækkað um 55 milljarða króna síðastliðið hálft ár, vegna gengisbreytinga og áfallinna vaxta. Verðmæti eigna Stoða er því nú talið nema um 25-30% af andvirði skulda, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

Í byrjun febrúar 2009 var myndað svokallað kröfuhafaráð Stoða sem hefur, ásamt stjórn og starfsmönnum Stoða, unnið að málefnum félagsins með hagsmuni lánardrottna að leiðarljósi. Í kröfuhafaráðinu sitja fulltrúar stærstu kröfuhafa félagsins, þ.e. fulltrúar frá Nýja Kaupþingi, Gamla Glitni, Landsbanka NBI, fulltrúi erlendra lánveitanda að sambankaláni og fulltrúi ótryggðra kröfuhafa.

Stjórnendur Stoða, stjórn og kröfuhafaráð félagsins telja að gjaldþrot þjóni ekki hagsmunum lánardrottna Stoða. Kæmi til gjaldþrots myndi rekstur félaga í eigu Stoða komast í uppnám og lægra verð fengist fyrir eignir félagsins en langtímaáætlanir gera ráð fyrir. Stjórnendur Stoða hafa, í náinni samvinnu við kröfuhafaráðið, samið drög að áætlun um endurskipulagningu fjárhags félagsins. Grundvallaratriði endurskipulagningarinnar eru að núverandi hlutafé verður afskrifað að öllu leyti og kröfuhafar félagsins munu eignast allt hlutafé í félaginu.

Fyrirhugaðir nauðasamningar við ótryggða kröfuhafa eru hluti af stærra ferli með þátttöku tryggðra kröfuhafa, sem eiga veð í eignum Stoða. Gert er ráð fyrir að tryggðir kröfuhafar muni skuldbreyta veðtryggðum kröfum sínum á hendur félaginu og fá þær greiddar að hluta með veðtryggðu skuldabréfi og að hluta til með hlutafé í sérstökum hlutaflokki sem nýtur forgangs til arðs gagnvart almennum hlutaflokki. Í frumvarpi að nauðasamningi er lagt til að allir kröfuhafar, tryggðir sem ótryggðir, fái allt að einni milljón króna greidda. Þannig munu eigendur krafna undir einni milljón króna fá kröfur sínar greiddar að fullu. Samkvæmt frumvarpinu munu ótryggðir kröfuhafar, sem eiga hærri kröfur en eina milljón, fá 5% af eftirstöðvum kröfu sinnar greidda með hlutafé í almennum flokki í Stoðum.

Frumvarp að nauðasamningi og heildarendurskipulagning á fjárhag félagsins miðar við að Stoðir geti haldið áfram rekstri án vandkvæða næstu ár og lendi ekki í greiðsluvanda. Þannig geti félagið sinnt eignum sínum og unnið að því að auka verðmæti þeirra, til hagsbóta fyrir kröfuhafa, að því er segir í tilkynningu.

Helstu eignir Stoða eru 99% eignarhlutur í TM og 49% eignarhlutur í Refresco en Stoðir eiga einnig hagsmuni í félögum á borð við Landic Property, Bayrock og Iceland Foods. Á skrifstofu Stoða í Hátúni 2b starfa nú sjö manns.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Innsýn í reksturinn

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir