Efast um aðferðir Nýja Kaupþings
Eftir Gréar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is
Framkoma Nýja Kaupþings við lánardrottna Pennans boðar ekki gott, að mati Ólafs Steinarssonar, forstjóra Plastprents. „Það er mjög vafasamt ef bankar eru farnir að stunda það að skipta um kennitölur á fyrirtækjum sem þeir yfirtaka, og koma þannig í bakið á lánardrottnum þeirra sem eiga ótryggðar kröfur á hendur viðkomandi fyrirtækjum. Þetta er einmitt það sem Nýja Kaupþing hefur gert gagnvart Plastprenti vegna viðskipta okkar við Pennann,“ segir Ólafur.
Nýja Kaupþing yfirtók rekstur Pennans hér á landi fyrir um hálfum mánuði. Í fyrradag var svo greint frá því að Sigurmar K. Albertsson hæstaréttarlögmaður hefði verið skipaður skiptastjóri Pennans.
Aukin útlán
Ólafur segir að stjórnendur Plastprents hafi verið meðvitaðir um erfiðleika Pennans áður en Nýja Kaupþing yfirtók reksturinn. Reynt hafi verið að vinna úr þeim málum sem sneru að viðskiptum fyrirtækjanna eins og frekast hafi verið unnt og þau hafi verið komin á ágætis grunn.„Síðan var það gefið út í fjölmiðlum að Nýja Kaupþing hefði yfirtekið rekstur Pennans hér á landi. Þær upplýsingar sem gefnar voru um þessi mál voru þannig, að það væri búið að koma rekstrinum fyrir hjá Nýja Kaupþingi. Við hjá Plastprenti, sem höfum framleitt poka fyrir Pennann, vorum því óhrædd við að greiða úr þeim málum sem það varðaði og þurfti fyrir fyrirtækið. Ég heimilaði til að mynda talsvert af afhendingum til Pennans á grundvelli þeirra upplýsinga sem gefnar voru út. En svo las ég það í netmiðlum, að Nýja Kaupþing hefði farið með félagið í þrot. Mér finnst þetta skrítið viðskiptasiðferði af hálfu bankans. Ef Penninn var svona illa staddur, af hverju var félagið þá ekki sett í þrot strax? Það hefði komið sér mun betur gagnvart okkur að vita um raunverulega stöðu strax þegar bankinn yfirtók reksturinn. Útlán okkar til Pennans eru miklu meiri nú en þau voru þegar Nýja Kaupþing yfirtók reksturinn.“
Ólafur segir að Plastprent sjái fram á að greiðslur fyrir þær vörur sem fyrirtækið afhenti Pennanum eftir að bankinn yfirtók félagið muni ekki skila sér. „Þar fyrir utan erum við með birgðir sem við höfum framleitt fyrir Pennann. Ég geri hins vegar ráð fyrir að vörumerkið hverfi ekki, og því sé von um að við munum geta samið við væntanlega nýja eigendur um þær þegar að því kemur.
En útlánatapið er meira en það hefði þurft að vera,“ segir Ólafur.
Ekki vísvitandi blekktir
HELGI Júlíusson, sem hefur tekið við starfi forstjóra Pennans á Íslandi, segir að lánardrottnar Pennans hafi alls ekki verið vísvitandi blekktir. Nýja Kaupþing hafi metið stöðuna þannig út frá skuldastöðu félagsins, að það væri ekki forsvaranlegt að halda rekstri félagsins áfram óbreyttum, og því hafi verið farið fram á gjaldþrotaskipti.Hann segir að Penninn hafi verið úrskurðaður gjaldþrota í fyrradag og skiptastjóri hafi þá komið að félaginu, Sigurmar K. Albertsson hæstaréttarlögmaður. Samið hafi verið við hann um kaup á öllum rekstrartengdum eignum Pennans hér á landi út úr þrotabúinu. Þær eignir hafi verið færðar yfir í nýtt félag sem hafi hafið starfsemi í gær.
Vilja ásættanlega niðurstöðu
„Dagurinn í dag [í gær] fór í það að endurráða starfsmenn og að hafa samband við alla okkar meginbirgja og þjónustuaðila, til að fara yfir málið með þeim og skipuleggja framhaldið. Okkar markmið er að hitta alla þessa aðila og fara yfir málið með þeim og ná einhverri lendingu varðandi þessar skuldir og áframhaldandi samstarf. Við ætlum okkur ekki að skilja kröfuhafa eftir úti í kuldanum og byrja með hreint borð. Við leggjum áherslu á að ná ásættanlegri lendingu,“ segir Helgi. gretar@mbl.isÍ hnotskurn
» Nýja Kaupþing yfirtók rekstur Pennans og fyrirtækja hans fyrir um hálfum mánuði.» Forstjóri Plastprents segir það skrítið viðskiptasiðferði hjá bankanum að fara með Pennann í þrot hálfum mánuði síðar.
» Útlán Plastprents til Pennans eru miklu meiri nú en þau voru þegar bankinn yfirtók reksturinn.



















