20 fyrrum starfsmenn SPRON til Nýja Kaupþings
Nýja Kaupþing hefur ráðið til sín tuttugu fyrrum starfsmenn SPRON. Segir í tilkynningu frá bankanum að innistæður sem færðust yfir í Kaupþing að beiðni yfirvalda hafi í raun verið skuld SPRON við viðskiptavini sína og voru engir fjármunir færðir til Nýja Kaupþings við aðgerðina. Nemur skuldin um 83 milljörðum króna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Nýja Kaupþing hefur sent frá sér.
„Í ljósi umræðu í fjölmiðlum í dag vill Nýja Kaupþing árétta að í kjölfar þess að Fjármálaeftirlitið tók yfir rekstur SPRON fóru stjórnvöld þess á leit við Nýja Kaupþing að allar innstæður fyrrum viðskiptavina SPRON og nb.is færðust yfir til bankans.
Meginmarkmið stjórnvalda með þessu var að tryggja aðgengi fyrrum viðskiptavina SPRON að innstæðum sínum enda eru allar innstæður tryggðar samkvæmt yfirlýsingu ríkistjórnarinnar. Þessi yfirfærsla gekk vonum framar og hafa fyrrum viðskiptavinir SPRON getað stundað almenn bankaviðskipti allt frá því tilmælin bárust frá ríkistjórninni.Fjöldi starfsmanna Nýja Kaupþings hefur lagt nótt við dag til að yfirfærslan hefði sem minnsta röskun í för með sér fyrir fyrrum viðskiptavini SPRON. Þá hefur bankinn ráðið til sín um 20 fyrrum starfsmenn SPRON.
Innstæðurnar sem færðust yfir í bankann að beiðni yfirvalda voru í raun skuld SPRON við viðskiptavini sína og voru engir fjármunir færðir til Nýja Kaupþings við aðgerðina. Þessi skuld nemur um 83 milljörðum króna. Þar sem innstæður eru forgangskröfur eru allar eignir fyrrum SPRON að veði fyrir þeim skuldbindingum sem Nýja Kaupþing tók yfir.
Nýja Kaupþing taldi því nauðsynlegt strax frá byrjun að gengið yrði frá skuldabréfi vegna innstæðna áður en farið væri að huga að sölu eigna SPRON. Það er af og frá að bankinn vilji með þessu sjónarmiði koma í veg fyrir samkeppni á íslenskum fjármálamarkaði.
Það er meginmarkmið starfsfólks bankans að nýjum viðskiptavinum Nýja Kaupþings verði tryggður réttur til eðlilegra bankaviðskipta, til jafns við alla viðskiptavini bankans og þeir verði fyrir sem minnstum óþægindum vegna breyttra aðstæðna á íslenskum fjármálamarkaði."



















