Engar fyrirætlanir um breytingar hjá Exista
BBR ehf, hefur engar fyrirætlanir um að gera verulegar breytingar á starfsemi Exista, þ.e. breytingar er krefjast breytinga á tilgangi félagsins samkvæmt samþykktum og störfum og starfsskilyrðum stjórnenda og starfsmanna félagsins.
Hins vegar, eins og fram hefur komið í tilkynningu Exista þá á Exista í viðræðum við innlendar og erlendar fjármálastofnanir um endurskoðun lánasamninga og krafna þeirra á hendur félaginu, sem og um uppgjör gagnkvæmra krafna. Staða félagsins er óljós af þeim sökum og hyggst Exista leita samninga um frestun á greiðslu vaxta og afborgana á skuldbindingum félagsins sem koma til gjalddaga á meðan á viðræðum stendur, að því er segir í yfirtökutilboði BBR.
Getur BBR ehf. ekki útilokað að þær viðræður kunni að leiða til einhvers konar fjárhagslegrar endurskipulagningar á félaginu og viðeigandi breytingum á samþykktum félagsins. Ennfremur er ekki hægt að útiloka slíkar breytingar til að bregðast við breyttum aðstæðum. Engar fyrirhugaðar breytingar eru á fyrri áformum félagsins um hlutafjáraukningu í formi forgangsréttarútboðs til hluthafa á þessu ári.
Ekki uppi áætlanir um sölu á eignum né veigamiklar yfirtökur
Á þessari stundu eru engar fyrirætlanir uppi um veigamiklar yfirtökur eða sölu á eignum og áfram verður gætt aðhalds í rekstrarkostnaði, að því er segir í yfirtökutilboði BBR.
Tilboðsgjafi hefur ekki í hyggju meiriháttar ráðstöfun eigna félagsins eins og sakir standa. BBR ehf. hefur ekki boðið stjórnendum eða stjórnarmönnum félagsins greiðslur eða endurgjald í öðru formi en því sem þeim er boðið sem hluthöfum samkvæmt yfirtökutilboðinu. BBR ehf. hyggst ekki leggja til verulegar breytingar á launastefnu gagnvart stjórnendum félagsins enda bjóði félagið á hverjum tíma samkeppnishæf laun og hlutdeild í hlutafé félagsins í samræmi við það sem eðlilegt getur talist fyrir stjórnendur fyrirtækja á borð við Exista.
Exista starfar á sviði trygginga, eignaleigu og fjárfestinga og á að fullu eftirtalin fyrirtæki: VÍS, Lífís, Lýsingu og Skipti sem er móðurfélag Símans.



















