Viðskipti
| mbl
| 7.4.2009
| 10:27
Japanska jenið styrkist
Japanska jenið styrkist gagnvart bandaríkjadal og evru í dag í fyrsta sinn í fjóra daga. Á sama tíma lækkuðu hlutabréfavísitölur í Japan í fyrsta sinn í fimm daga.
Jenið styrkist um 1,8 prósent gagnvart evru og 0,7 prósent gagnvart bandaríkjadal. Það styrktist þó mest gagnvart Ný-Sjálenska dalnum, eða um 2,7 prósent.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















