Viðskipti
| Morgunblaðið
| 9.4.2009
| 5:30
| Uppfært
9:13
Stefnir LÍ Lúx og Kaupþingi
thorbjorn@mbl.is
MP banka var nýlega falið að ráðstafa eignarhlut þrotabús Samsonar í Novator Properties Ltd. (NP). Eignarhluturinn í NP var metinn á 14,3 milljarða króna í ársreikningi Samsonar. Helgi Birgisson, skiptastjóri þrotabúsins, segir að í ljósi þess hvernig markaðir hafi þróast að undanförnu sé ómögulegt að setja verðmiða á eignarhlutinn, en eignir NP eru aðallega fasteignafélög.
Í skýrslu skiptastjóra segir að söluverð eignarhlutarins í NP sé metið mun lægra en í bókum Samsonar. „Það er ekki loku fyrir það skotið að þrotabúið haldi þessum eignarhlut þangað til öldurnar lægir á mörkuðum,“ segir Helgi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















