Landic Property óskar eftir greiðslustöðvun

Landic Property eiga Aðalstræti 6 og 8
Landic Property eiga Aðalstræti 6 og 8

Stjórn Landic Property hf. hefur óskað eftir því við Héraðsdóm Reykjavíkur að félaginu verði veitt heimild til greiðslustöðvunar. Jafnframt sóttu í dag nokkur dótturfélög Landic Property í Danmörku um greiðslustöðvun fyrir dómstólum í Kaupmannahöfn.

Segir í tilkynningu frá félaginu að starfsemi dótturfélaga Landic Property sem eiga og reka fasteignasöfn samstæðunnar í Danmörku, Svíþjóð, Íslandi og Finnlandi er óbreytt. Leigutakar félagsins verða ekki fyrir áhrifum vegna greiðslustöðvanna. <p>

„Með greiðslustöðvun umræddra félaga er gætt jafnræðis meðal kröfuhafa Landic Property á meðan lokið er við endurskipulagningu félagsins og gengið frá samningi um sölu á eignasöfnum Landic Property í Danmörku og Svíþjóð.

Á Íslandi gildir greiðslustöðvunin einungis fyrir móðurfélagið, Landic Property hf., en ekki íslensk dótturfélög."

Í Danmörku hafa eftirtalin dótturfélög Landic Property sótt um greiðslustöðvun: Landic Property A/S, Keops Development A/S, Landic Investment A/S og Keops Bolig A/S auk nokkurra félaga sem stofnuð voru um einstök þróunarverkefni félagsins.

Dótturfélög Landic Property sem eiga og reka fasteignir félagsins í Danmörku, Svíþjóð, Íslandi og Finnlandi eru ekki í greiðslustöðvun og gildir greiðslustöðvunin m.a. ekki um eftirtalin dótturfélög: Landic Property Denmark A/S (áður Atlas), Landic Property Denmark II A/S (Magasin/Illum fasteignirnar), Landic Property Sverige AB, Landic Property Finland Oy, Landic Property Bonds I A/S (SAS-fasteignasafnið), Landic Property Bonds VI (Svergie) A/S, Landic Property Bonds VII (Stokkhólm) A/S, Landic Property Bonds VIII (Svergie II) A/S, og Landic InvestorService A/S, Landic Ísland ehf., Langastétt ehf., Landsafl ehf., Landic Property Ísland ehf., Austurstræti 14 ehf., FS6 ehf. og Líf fasteignir ehf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK