Óánægðir hluthafar í Rio Tinto
Rio Tinto er eitt stærsta námur- og málmframleiðslufyrirtæki í heimi. HO
Litlir hluthafar í námu- og málmframleiðslufyrirtækinu Rio Tinto, móðurfélagi álversins í Straumsvík, eru margir óánægðir með fyrirætlanir um stóraukinn eignarhlut Kínverja í félaginu. Hluti þeirra kom saman til fundar í London í gær til að ræða um leiðir til að koma í veg fyrir þessar fyrirætlanir.
Frá því var greint í febrúarmánuði síðastliðnum að kínverska álfyrirtækið Chinalco, sem er í eigu kínverskra ríkisins, hefði boðist til að fjárfesta fyrir 19,5 milljarða Bandaríkjadollara í Rio Tinto. Ensk- kanadíska stórfyrirtækið Rio Tinto hefur átt við mikla fjárhagserfiðleika að stríða í kjölfar yfirtöku félagsins á kanadíska álfyrirtækinu Alcan frá árinu 2007. Við þessa fjárfestingu kínverska fyrirtækisins myndi það verða komið með um 18% hlut í Rio Tinto. Áströlsk stjórnvöld hafa enn ekki samþykkt fjárfestinguna.
Hópur lítilla fjárfesta í Rio Tinto sem og ýmsir stærri fjárfestar hafa haldið því fram að kínverska álfyrirtækið sé að fá stóran hlut í félaginu á einkar óhentugum tíma, þegar aðstæður séu sérstaklega óhagstæðar fyrir aðra en kínverska félagið sem hafi úr nógu fjármagni að spila.
Segir í frétt á breska fréttavefnum TinesOnline að mikil samstaða hafi verið meðal þeirra litlu hluthafa sem mættu á fundinn í London í gær.



















