Skilanefnd Glitnis selur Moderna Life
Breska líftryggingafélagið Chesnara hefur keypt sænska líftryggingafélagið Moderna Life, dótturfélag Moderna Finance sem áður var í eigu bræðranna Karls og Steingríms Wernerssona. Skilanefnd Glitnis yfirtók Moderna Finance í síðasta mánuði. Greiðir Chesnara skilanefnd Glitnis 250 milljónir sænskra króna, 3,8 milljarðar íslenskra króna, fyrir Moderna Life.
Í tilkynningu frá Chesnara, sem er móðurfélag Coutrywide Assurance, segir, að Moderna Life hafi verið metið á 54 milljónir punda en kaupverðið verið 63% lægra. Í frétt Reuters kemur fram að Chesnara hyggur á frekari kaup á fyrirtækjum en félagið yfirtók árið 2005 tryggingafélagið City of Wesminster Assurance.
Viðskiptavinir Moderna Life voru 74 þúsund talsins um síðustu áramót og nam tap félagsins fyrir skatta 31,1 milljón sænskra króna fyrir skatta á síðasta ári.



















