Skuldum breytt í hlutafé
Gangi tillögur stjórnenda Teymis eftir verður um 68% af skuldum félagsins breytt í hlutafé. Kemur þetta fram í gögnum, sem lögð voru fram á fundi með kröfuhöfum félagsins í dag. Þá yrði núverandi hlutafé Teymis fært niður.
Skuldir Teymis eru nú um 42,4 milljarðar króna og gera tillögurnar ráð fyrir því að 28,8 milljörðum verði breytt í hlutafé. Eftir stæðu 13,6 milljarðar, sem eru um 4,5-föld áætluð EBITDA (hagnaður fyrir skatta og fjármagnsliði) Teymis á þessu ári.
Nýi Landsbankinn stærstur kröfuhafa
Gangi kröfuhafar fyrirtækisins að þessum tillögum myndi Nýi Landsbankinn (NBI) eiga 57% í Teymi, eigendur skuldabréfaflokka ættu 33%, Straumur 8% og Íslandsbanki 2%. Eins og þessar tölur bera með sér er NBI stærsti einstaki kröfuhafinn í Teymi og á hann jafnframt veðrétt í flestum dótturfyrirtækjum Teymis.
Um væri að ræða formlegan nauðasamning með staðfestingu héraðsdóms. Áður en farið verður með tillögurnar fyrir héraðsdóm þurfa 25% kröfuhafa að mæla með leiðinni. fyrirfram. Þá þurfa eigendur 75-80% af kröfum í fyrirtækið að samþykkja nauðasamninginn.
Í kröfuhafakynningunni er vandi Teymis rakinn til þess að á skömmum tíma jukust skuldir fyrirtækisins um 11 milljarða króna á sama tíma og verðmæti félagsins á markaði hríðféll. Er markaðsvirði þess í kynningunni metið 17,5 milljarðar króna.
Kynning kröfuhafa á pdf formi.



















