Viðskipti
| Morgunblaðið
| 17.4.2009
| 7:11
| Uppfært
15.12.2009
15:07
Skýrslu um bankana ekki skilað
Fullnaðarútgáfu skýrslu Olivers Wymans um samhæft endurmat á Nýja Landsbankanum (NBI), Nýja Kaupþingi og Íslandsbanka hefur enn ekki verið skilað inn til Fjármálaeftirlitsins (FME). Skýrslunni átti að skila fyrir miðnætti á miðvikudag en samkvæmt upplýsingum frá FME mun fullnaðarútgáfa hennar ekki liggja fyrir fyrr en í næstu viku.
Formlegar viðræður milli ráðgjafa skilanefndanna og ráðgjafa ríkisstjórnarinnar um skiptingu eigna milli gömlu og nýju bankanna geta ekki hafist fyrr en skýrslan liggur fyrir. Ríkisstjórnin stefnir að því að ljúka þessum viðræðum í síðasta lagi 18. maí. Skýrslan verður í tveimur hlutum. Í fyrri hlutanum verður lýst aðferðafræði, forsendum og verðmæti eigna sem fluttar voru úr bönkunum á tilteknu verðbili. Í síðari hlutanum verður síðan að finna mat á einstökum eignum. Sá hluti geymir viðkvæmar upplýsingar og er bundinn ríkum trúnaði samkvæmt upplýsingum frá FME.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















