Ótengt viðræðum um Icesave-lausn
Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is
Svavar Gestsson, sem fer fyrir íslensku sendinefndinni sem nú semur um Icesave-skuldirnar við bresk stjórnvöld, segir þessar fréttir þó mikilvægar fyrir þróun mála í Bretlandi. Orðspor Íslands ytra batni og það sé gott veganesti í þeim umræðum sem nú standi yfir.
Samningaviðræður íslenskra og breskra stjórnvalda snúast um ábyrgð ríkissjóðs á innstæðum Icesave-reikninga í útibúum Landsbankans í Bretlandi og Hollandi. Einnig uppgjör við Þjóðverja vegna innstæðna á Kaupþing Edge-reikningum þar í landi.Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á ársfundi Seðlabankans sl. föstudag að eignir Kaupþings væru nægilegar til þess að gera upp við þýska innstæðueigendur. Ekkert fellur því á íslenska skattgreiðendur vegna þeirra. Íslenska ríkið þarf hins vegar að taka lán til að standa við Icesave-skuldbindingar. Þær skuldir verða svo greiddar niður þegar eignir Landsbankans verða seldar. Ekki hafa samningar náðst um lengd lánstíma, vaxtakjör, greiðsluskilmála, endurskoðunarákvæði í samningnum og önnur skilyrði. Þær hugmyndir sem settar hafa verið fram eru óviðunandi af hálfu Íslendinganna.
Svavar Gestsson segist ekki geta sagt til um hvernig viðræðurnar gangi. Hann geti ekki heldur upplýst hvenær von sé á niðurstöðu. Þetta eigi allt eftir að koma í ljós. Undanfarið hafi hann átt tíu til fimmtán fundi með ýmsum aðilum málsins.



















