Tengjast ekki Exeter Holding

Margeir Pétursson er einn þriggja stjórnarmanna sem skrifa undir yfirlýsinguna. stækka

Margeir Pétursson er einn þriggja stjórnarmanna sem skrifa undir yfirlýsinguna. mbl.is/kristinn

Stjórnarmenn í MP Banka segjast í yfirlýsingu ekki vera tengdir félaginu Exeter Holding, sem átti viðskipti með bréf í Byr sparisjóði. Stjórnarmennirnir segjast hafa átt félagið, sem þá bar nafnið Heilsusjóðurinn, til ársins 2006. Þetta hefði mátt sannreyna með því að skoða opinber gögn.

Yfirlýsing frá stjórnarmönnum MP Banka:

„Ríkissjónvarpið  birti í síðustu viku  mjög áberandi frétt um að undirritaðir stjórnarmenn MP Banka væru tengdir félagi sem heitir  Exeter Holdings.  Það félag átti samkvæmt fréttinni að hafa átt í viðskiptum sem Ríkissjónvarpinu þóttu fréttnæm.  Við undirritaðir vorum nafngreindir eins og við hefðum átt aðild að þeim viðskiptum.  Það er rangt.   Tenging okkar við ofangreint félag felst í  því að við vorum á meðal stofnenda þess fyrir sjö  árum.  Frá árinu 2006 höfum við ekkert komið nálægt því, ekki setið í stjórn eða tekið þátt í neinum viðskiptum á þess vegum.  Það er auðvitað margþekkt að einstaklingar stofni félög en hverfi síðan frá þeim.

Nánar var þessu þannig farið að við undirritaðir stjórnarmenn í MP Banka vorum tengdir Heilsusjóðnum ehf. frá stofnun árið 2002 til ársins 2006.  Þá eignaðist núverandi eigandi félagið, breytti meðal annars nafni þess í Exeter Holdings og tók að fullu við stjórn þess.  Undirritaðir stjórnarmenn í MP Banka hafa ekki haft tengsl við félagið né borið nokkra ábyrgð á því síðan eigendaskiptin fóru fram árið 2006.

Í frétt Ríkissjónvarpsins var  hins vegar fullyrt að þessi  tenging ætti enn við.  Allir hljóta að sjá grundvallarmun á því að hafa verið tengdur félagi fyrir nokkrum árum, eða tengjast því og bera ábyrgð á því nú.   Fréttamaður RÚV og heimildarmaður hans kusu því miður að halla réttu máli, þótt skýr opinber gögn hafi legið fyrir.  Með aðferðafræði þeirra mætti  halda því fram að stofnendur Loftleiða væru tengdir FL Group.  Fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra er öllum opin.  Hún er ekki á Tortola eyjum, heldur að Laugavegi 166, Reykjavík.

Enn einu sinni verður einnig að árétta að hafi stofnfjáreigendur í Byr sparisjóði eitthvað að athuga við lánveitingar Byrs  verða þeir að eiga það við stjórn Byrs.  MP Banki hefur ekkert yfir þeim að segja.  Byr er næststærsti hluthafinn í MP Banka.  Sú fjárfesting hefur verið arðbær fyrir Byr og vonum við að svo verði áfram um ókomin ár.  Við  hina ágætu starfsmenn Byrs er ekki að sakast þó eiginfjárhlutfall Byrs sé nú aðeins rétt rúmlega 8%.  Ef stofnfjáreigendur hefðu ekki greitt sér 13 milljarða króna í arð í fyrra væri hlutfallið u.þ.b. 15%.  Væri ekki nær að endurfjárfesta hluta af arðinum til að laga stöðuna, fremur en að drepa málum á dreif með því að reyna að gera eina bankann sem eftir er tortryggilegan?“

Undir þetta rita Margeir Pétursson, Sigfús Ingimundarson og Sigurður Gísli Pálmason, stjórnarmenn í MP Banka.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Time Warner

Time Warner gleður fjárfesta

16:04 Hagnaður bandaríska fjölmiðlafyrirtækisins Time Warner jókst um 0,5% á fjórða ársfjórðungi og nam 233 milljónum Bandaríkjadala, 28,5 milljörðum króna. Meira »

Hlutabréfavísitölur á uppleið

15:53 Helstu hlutabréfavísitölur beggja vegna Atlantsála hafa hækkað í dag vegna væntinga um að samkomulag sé að nást í Grikklandi um skuldir ríkissjóðs. Meira »

Veltuaukningin 6,8%

Íslendingar notuðu Visa kortin sín mun meira í janúar í ár en í fyrra í ...
15:39 Veltuaukning á Visa kreditkortaviðskiptum var 6,8% í janúar borið saman við sama mánuð í fyrra. Notkunin innanlands jókst um 5,6% en í útlöndum var veltuaukningin tæp 17,4%. Meira »

Íhugaði að segja af sér

Forstjóri Royal Bank of Scotland, Stephen Hester
12:42 Stephen Hester, forstjóri breska bankans Royal Bank of Scotland, viðurkennir að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því fyrirfram hversu mikil reiði myndi brjótast út vegna fyrirhugaðra bónusgreiðslna hans og segist hann hafa íhugað að segja af sér. Meira »

Nýr tónn hjá nefndinni

Seðlabanki Íslands
12:21 Greining Íslandsbanka segir að nú kveði við nýjan tón hjá peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands en nefndin telur að ef verðbólguhorfur batni ekki þurfi að hækka nafnvexti. Meira »

Veltuaukningin 73,9%

Fasteignasala jókst á síðasta ári á höfuðborgarsvæðinu
11:35 Alls var 372 kaupsamningum um fasteignir þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í janúar. Heildarvelta nam 11 milljörðum króna. Er þetta veltuaukning um 73,9% á milli ára. Meira »

Ákvörðunin kom skemmtilega á óvart

Már Guðmundsson seðlabankastjóri
15:16 Greiningardeild Arion-banka segir að ákvörðun Seðlabanka Íslands um að halda stýrivöxtum óbreyttum hafi komið deildinni skemmtilega á óvart en deildin hafði spáð stýrivaxtahækkun. Meira »

Mikil viðbrögð á markaði

12:24 Mikil viðbrögð hafi verið á skuldabréfamarkaði í morgun í kjölfar tilkynningar peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um óbreytta vexti, samkvæmt upplýsingum frá greiningu Íslandsbanka. Meira »

Vextir miklu hærri hér

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ
11:59 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að því beri að fagna að Seðlabankinn hafi ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum en á sama tíma skjóti það skökku við að stýrivextir á Íslandi séu 4,5% hærri heldur en í helstu viðskiptalöndum. Meira »

Níu evruríki vilja skatt á fjármagnsflutninga

10:39 Hópur níu evruríkja undir forystu Frakklands og Þýskalands hafa óskað eftir því við Dani, sem fara nú með forsætið innan Evrópusambandsins, að flýta áætlunum um sérstakan skatt á fjármagnsflutninga. Meira »

Hagvaxtarspár á niðurleið

10:09 Spár um hagvöxt á þessu ári hafa verið lækkaðar í flestum viðskiptalöndum Íslands, að Bandaríkjunum og Japan undanskildum. Efnahags- og þróunarstofnunin (OECD) spáir 0,8% hagvexti á árinu í helstu viðskiptalöndum Íslands. Meira »

Verðbólgan veldur áhyggjum

Vilhjálmur Egilsson
11:22 Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að verðbólgan valdi samtökunum áhyggjum líkt og Seðlabankanum en útlit er fyrir að verðbólgan haldist áfram mikil á Íslandi. Meira »

Einkaneyslan helsti drifkrafturinn

Seðlabankinn spáir því að einkaneysla verði áfram töluverð á Íslandi
10:23 Seðlabankinn gerir ráð fyrir að einkaneysla verði áfram einn helsti helstu drifkraftur efnahagsbatans líkt og á undanförnum misserum. Til loka árs 2014 spáir Seðlabankinn því að einkaneysla muni vaxa um 2½% að meðaltali á ári. Meira »

Útlit fyrir 7% lækkun álverðs

Alcoa Fjarðaál
10:07 Áætlað er að álverð verði um 7% lægra að meðaltali á þessu ári en í fyrra en að verð á sjávarafurðum í erlendum gjaldmiðlum haldi áfram að hækka. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir