Fallist á beiðni um nauðasamninga
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á beiðni Teymis hf. um heimild til þess að leita nauðasamnings við lánardrottna sína. Umsjónarmaður með nauðasamningsumleitunum var skipaður Brynjar Níelsson, hrl.
Á hluthafafundi Teymis í gærmorgun var samþykkt að færa allt hlutafé félagsins niður í 0 kr. Þá var samþykkt að hækka það um kr. 4.000.000. Endi ehf. og Botn ehf. skrifuðu sig fyrir allri hlutafjárhækkuninni.
Endi ehf. og Botn ehf. eru einkahlutafélög í eigu Fulltingis lögfræðiþjónustu, en Kristinn Hallgrímsson er meðal eigenda stofunnar.
Kristinn skipar jafnframt nýja stjórn Teymis ásamt þeim Lúðvíki Erni Steinarssyni og Gunnari Þór Ásgeirssyni.
Að sögn Kristins mun liggja fyrir hvort nauðasamningur verði samþykktur í byrjun júní. Ef það gengur eftir verður núverandi hlutafé, fjórar milljónir króna, einnig fært niður. Að svo búnu verður skuldum breytt í hlutafé og kröfuhafar félagsins taka formlega við sem eigendur. Verður það líklega í lok sumars, að sögn Kristins. Landsbankinn er stærsti kröfuhafi Teymis og mun eignast 57% hlut í félaginu.
Teymi á m.a Vodafone og stóran hlut í Tali. Íslenska ríkið verður því í kjölfarið umsvifamikið á íslenskum fjarskiptamarkaði.



















