Viðskipti
| mbl
| 21.4.2009
| 7:13
Lækkun í Asíu og Ástralíu
Helstu hlutabréfavísitölur hafa lækkað í Asíu og Ástralíu í dag. Meðal skýringa er verri afkoma China Mobile heldur en spáð hafði verið og aukinn ótti fjárfesta við stöðu banka. Hlutabréf China Mobile lækkuðu um 5,5% í Hong Kong og Orix fjármálafyrirtækið lækkaði um5,7% í Tókýó. Í Ástralíu lækkaði BHP Billiton um 4% á sama tíma og hráolíuverð og verð á málmum, svo sem áli, hélt áfram að lækka.
Nikkei lækkaði um 2,4% í Tókýó og S&P/ASX 200 vísitalan í Sydney lækkaði um 2,4%, samkvæmt frétt Bloomberg en í morgun staðfesti seðlabankastjóri Ástralíu orð forsætisráðherra Ástralíu, Kevin Rudd, um að kreppa væri í aðsigi í Ástralíu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















