Viðskipti
| mbl
| 24.4.2009
| 15:16
27 fasteignir seldar
Alls var 27 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 17. apríl til og með 23. apríl 2009. Þar af voru 19 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 765 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28,3 milljónir króna.
Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 125 milljónir króna og meðalupphæð á samning 17,9 milljónir króna.
Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 145 milljónir króna og meðalupphæð á samning 24,1 milljón króna.
Á sama tíma var 1 kaupsamningi þinglýst á Árborgarsvæðinu. Hann var um eign í sérbýli. Upphæð samningsins var 29 milljónir króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















