Viðskipti
| mbl
| 27.4.2009
| 9:01
Dregur úr hagnaði veiða og vinnslu
mbl.is
Hagnaður botnfiskveiða og -vinnslu reiknaður samkvæmt árgreiðsluaðferð lækkaði frá árinu 2006 til ársins 2007 úr 18½% í 13%.
Hreinn hagnaður botnfiskveiða, lækkaði úr 16½% af tekjum í 12½%, að sögn Hagstofunnar en hagnaður botnfiskvinnslu lækkaði úr 9½% af tekjum í 3½%.
Hagnaður var áfram á rekstri mjölvinnslu og á rekstri loðnuskipa á árinu 2007.
Heildareignir sjávarútvegs í árslok 2007 voru 435 milljarðar króna, heildarskuldir 325 milljarðar og eigið fé 110 milljarðar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















