Viðskipti
| Morgunblaðið
| 28.4.2009
| 5:30
| Uppfært
8:19
Björgólfur dottinn af lista yfir auðmenn
Enginn Íslendingur, búsettur í Bretlandi, er lengur á lista breska blaðsins Times yfir ríkustu íbúa Bretlandseyja. Í fyrra var Björgólfur Thor Björgólfsson í 29. sæti listans og bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir voru í 213. sæti.
Voru eignir Björgólfs metnar á rúma tvo milljarða punda (um 380 milljarða króna á núvirði) árið 2008 og eignir Ágústs og Lýðs á 410 milljónir punda.
Listinn yfir ríkasta fólk Bretlandseyja fylgdi með Sunday Times um helgina en verður birtur á vef blaðsins, timesonline.co.uk, klukkan 13 í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















