Góður hagnaður hjá Deutsche Bank
Hagnaður Deutsche Bank, stærsta banka Þýskalands, nam 1,2 milljörðum evra, jafnvirði 206 milljörðum króna, á fyrsta fjórðungi ársins. Er þetta mun betri afkoma en búist var við. Á sama tímabili í fyrra var 141 milljónar evra tap á rekstri bankans en sérfræðingar spáðu því að 764 milljóna evra hagnaður yrði nú.
Margir stórir alþjóðlegir bankar, sem áttu í miklum erfiðleikum á síðari hluta ársins 2008, náðu sér á strik á fyrsta fjórðungi ársins. Má þar nefna Bank of America, Goldman Sachs og Credit Suisse auk Deutsche Bank. Þykja þetta vera vísbendingar um að botni fjármálakreppunnar hafi verið náð.
Deutsche Bank tilkynnti þó í dag, að eignir hefðu verið afskrifaðar um milljarð evra. Hefur bankinn lagt háar fjárhæðir í varúðarsjóð til að mæta væntanlegu tapi vegna tryggingastarfsemi.



















