Fons gjaldþrota

Pálmi Haraldsson
Pálmi Haraldsson mbl.is/Þorkell

Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti í dag að taka Fons, eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, til gjaldþrotaskipta. Félagið á meðal annars Securitas og Plasprent. Pálmi segir þetta vera áfall. Félagið hafi staðið betur en mörg önnur félög.

Fons hefur verið atkvæðamikið félag í íslensku viðskiptalífi undanfarin ár og átti meðal annars stóran hlut í FL Group. Auk Securitas og Plastprent á Fons hlut í bresku leikfangaversluninni Hamleys og norrænu ferðaþjónustufyrirtækinu Ticket. 

„Þetta er auðvitað mikið áfall,“ segir Pálmi en vill að öðru leyti lítið tjá sig um stöðu félagsins. Óskað hafi verið eftir að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta sem Héraðsdómur samþykkti í dag.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru eignir félagsins metnar á tíu til tólf milljarða. Þar af eru fjórir milljarðar í reiðufé. Skuldirnar nema hins vegar um tuttugu milljörðum. Viðskiptabankarnir þrír eru stærstu kröfuhafar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK