Vöruskiptin hagstæð í mars

Sjávarafurðir eru stór hluti útflutnings Íslendinga.
Sjávarafurðir eru stór hluti útflutnings Íslendinga.

Í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 34,7 milljarða króna og inn fyrir 26,5 milljarða króna. Vöruskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 8,3 milljarða króna, að sögn Hagstofunnar. Í mars 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 3,1 milljarð króna á sama gengi.

Fyrstu þrjá mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 100,7 milljarða króna en inn fyrir 86,1 milljarð króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 14,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 37,5 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 52,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður. 

Fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 17,4 milljörðum eða 14,7% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 13,2% minna en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 49% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 15,3% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls.

Fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 69,4 milljörðum eða 44,6% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í verðmæti nær allra liða innflutnings, mest í fjárfestingavöru og flutningatækjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK