Viðskipti
| mbl
| 4.5.2009
| 9:37
Straumur frestar birtingu ársreiknings
Fjármálaeftirlitið hefur veitt Straumi frest til að skila ársreikningi fyrir árið 2008 til loka maí mánaðar. Straumur er í greiðslustöðvun sem gildir til 11. júní næst komandi.
Í tilkynningu frá Straumi-Burðarási fjárfestingabanka hf. segir að endurskipulagning félagsins standir nú yfir og framkvæmdastjórn bankans hafi fundað með lánveitendum í þeim tilgangi að endurskipuleggja rekstur félagsins og koma nýrri skipan á fjármál þess. „Vegna stöðu félagsins hefur Fjármálaeftirlitið (FME) veitt Straumi frest til að skila ársreikningi fyrir árið 2008 til loka maí mánaðar,“ segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















