Úr hagnaði í tap
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum tapaði 1,2 milljónum evra árið 2008. Árið áður hagnaðist félagið um tæplega 7 milljón evra. Þetta er í fyrsta skipti sem Vinnslustöðin skilar ársuppgjöri í evrum. Eigið fé félagsins lækkaði um 4,8 milljónir evra.
Með því að skila uppgjöri í evrum í stað krónum batnar eiginfjárhlutfall félagsins. Sem dæmi skuldaði Vinnslustöðin í árslok 2007 6,5 milljónir evra í japönskum jenum. Í árlok 2008 nam upphæðin rúmlega 13 milljónum evra.
Heildarskuldir og skuldbindingar Vinnslustöðvarinnar hf. stóðu nánast í stað frá upphafi árs til ársloka og eru 68,2 milljónir evra. Nettóskuldir eru 50,5 milljónir evra en þær voru 44,5 milljónir evra í lok árs 2007 og hækkuðu því um 6 milljónir evra.
Heildartekjur félagsins voru 63,1 milljónir evra og jukust um 1,5 milljónir evra frá fyrra ári. Tekjur fiskvinnslu lækkuðu um tæpar 1,3 milljónir evra og tekjur útgerðar lækkuðu lítillega en tekjur vörusölu, endursölu mjöls og lýsis, jukust töluvert frá fyrra ári eða um 2,6 milljónir evra. Framlegð félagsins (hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði) nam 15,2 milljónum evra eða 24% af heildartekjum og jókst um 1,9 milljónir evra frá fyrra ári en þá var framlegðarhlutfall 21,5%.
Í ábendingu endurskoðenda segir: „Óvenjulegar aðstæður hafa nú skapast á fjármálamarkaði og almenn óvissa ríkir um áframhaldandi rekstur fyrirtækja landsins. Ekki er fyrirséð hver áhrif fjármálakreppunnar verða á áframhaldandi rekstur félagsins. “



















