Straumur birtir ársreikning í maí
Ráðgert er að Straumur fjárfestingabanki birti ársreikning sinn nú í lok maí. Vinnu við gerð reikningsins er ekki lokið þar sem endurskipulagning Straums stendur yfir og fundað er með lánveitendum til að koma á nýrri skipan á fjármál félagsins, eins og segir í tilkynningu.
„Endurskipulagning Straums stendur nú yfir og hefur framkvæmdastjórn bankans fundað með lánveitendum í þeim tilgangi að endurskipuleggja rekstur félagsins og koma nýrri skipan á fjármál þess, sbr. tilkynningar frá Straumi 30. mars og 17. apríl s.l.,“ segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.
Vegna framangreindra aðstæðna sé vinnu við gerð ársreikning Straums fyrir árið 2008 enn ekki lokið. Ráðgert sé að þeirri vinnu ljúki í maí og að þá verði unnt að birta ársreikninginn opinberlega, sbr. 57. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007.
„Fjármálaeftirlitið hefur orðið við beiðni Straums um að fresta skilum á ársuppgjöri til loka maí nk. Sú heimild nær ekki til þess að fresta birtingu ársreikningsins eins og ráða mátti af fyrri tilkynningu.“
Minnt er á að þann 9. mars tók Fjármálaeftirlitið yfir vald hluthafafundar
Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. (Straumur), vék stjórn
bankans frá störfum og skipaði Straumi skilanefnd sem tók við öllum
heimildum stjórnar félagsins. Nýr forstjóri Straums var ráðinn til
starfa þann 17 mars.
Þann 19. mars veitti Héraðsdómur Reykjavíkur Straumi heimild til
greiðslustöðvunar sem gildir til 11. júní 2009, sbr. tilkynningu frá
Straumi þann 19. mars.



















