Fimm til sex tilboð bárust í A4
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
Fimm til sex tilboð hafa borist í ritfangaverslunarkeðjuna A4 sem er á forræði skilanefndar Sparisjóðabankans. A4 var lýst gjaldþrota um miðjan apríl og í kjölfarið var rekstur félagsins færður undir nýja kennitölu.
Að sögn Þorvarðar Gunnarssonar, formanns skilanefndar Sparisjóðabankans, var fyrirtækið auglýst til sölu fyrir um tveimur vikum. „Þetta var auglýst og við útbjuggum síðan smá kynningarefni um félagið. Það voru tíu aðilar sem lýstu yfir áhuga á að eignast það. Síðan bárust fimm til sex tilboð í félagið. Niðurstaðan ætti að liggja fyrir fljótlega. Það er verið að vinna úr tilboðum og sjá hvert þeirra er okkur hagstæðast. Síðan verður gengið til samninga við þann sem býður best. Öll tilboðin eru hins vegar með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og annað slíkt, þannig að þetta verður að hafa sinn gang.“
Fjármálaeftirlitið (FME) tók yfir Sparisjóðabankann í lok mars síðastliðins og skipaði í kjölfarið skilanefnd yfir hann. Þegar A4 var síðan lýst gjaldþrota um miðjan apríl þá tók stærsti lánardrottinn keðjunnar, Sparisjóðabankinn, yfir rekstur fyrirtækisins á nýrri kennitölu. Skömmu áður hafði Nýja Kaupþing tekið yfir rekstur Pennans, sem einnig rekur ritfangaverslanir, og sett hann undir nýja kennitölu. Í kjölfarið var skipaður skiptastjóri yfir þrotabú Pennans. Tilfærslurnar vöktu hörð viðbrögð hjá bæði birgjum og samkeppnisaðilum Pennans og A4 og voru bankarnir tveir ásakaðir um að stunda kennitöluflakk.



















