Gleymdu evrópsku reglunum
Samtök hollenskra innistæðueigenda, sem áttu meira en 100.000 evrur á Icesave reikningum Landsbankans þar í landi, munu funda með sendiherra Íslands í Hollandi í næstu viku um stöðu mála.
Telja Hollendingarnir að þar sem íslensk stjórnvöld hafi ábyrgst innistæður sparifjáreigenda á Íslandi að fullu felist í því mismunun og þar með brot gegn reglum Evrópska efnahagssvæðisins, ef reikningseigendur íslensku bankanna í öðrum EES-ríkjum njóti ekki sama réttar.
Gerard van Vliet, talsmaður samtakanna, segist hafa fengið bréf frá Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, þar sem óskað er eftir því að samtökin fundi með sendiherranum.
„Í bréfinu kemur fram að íslensk stjórnvöld séu hvorki að hafna né viðurkenna kröfur okkar. Við erum hins vegar beðin að funda með sendiherra íslands í London, sem er einnig sendiherra í Hollandi. Fundurinn verður haldinn á þriðjudag eða miðvikudag. Lesa má milli línanna í bréfinu að þegar neyðarlögin voru sett hafi íslensk stjórnvöld hreinlega gleymt evrópskum reglum um innistæðutryggingar. Samkvæmt þessum reglum er alfarið bannað að gera upp á milli innistæðueigenda á grundvelli þjóðernis. Þessar reglur gilda á Íslandi vegna EES-samningsins,“ segir van Vliet.
Hann segir einnig, að hafa beri í huga að Landsbankinn hafi ekki haft skrifstofu eða útibú í Hollandi, heldur hafi reikningunum verið stýrt frá Reykjavík.
Hollensku samtökin sögðust í síðustu viku ætla að kæra Ísland til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Eftirlitsstofnunar EFTA yrðu innistæður félagsmannanna ekki greiddar út í þessari viku. „Verði fundurinn með sendiherranum til þess að viðræður hefjist af alvöru við okkur viljum við miklu frekar finna lausn með þeim hætti en að fara í mál við Ísland. Mun hópurinn því bíða með að leggja fram kæruna þar til eftir fundinn með sendiherranum, en áfram verði haldið undirbúningi málsins,“ segir van Vliet.



















