Tekist hefur að draga úr tortryggni kröfuhafa
Skortur á upplýsingagjöf til kröfuhafa gömlu bankanna hafði dregið úr trausti þeirra í garð íslenskra stjórnvalda og þeir töldu, að nægilegrar sanngirni gætti ekki í tímaáætlun við samningaviðræður og að ekki væri tekið tillit til þarfa þeirra til að vinna úr upplýsingum sem lagðar yrðu fram í þeim viðræðum.
Þetta kemur fram í nýju vefriti fjármálaráðuneytisins, þar sem fjallað er um undirbúning þeirra flóknu og viðamiklu viðræðna, sem framundan eru milli skilanefnda gömlu bankanna og og kröfuhafa annars vegar og nýju bankanna hinsvegar. Þessar viðræður eru liður í að reisa nýja banka til að þjóna innlendum fjármálamarkaði, heimilum og atvinnulífi.
Í vefritinu kemur fram, að samskipti við skilanefndir, ráðgjafa þeirra og kröfuhafa hafi nú batnað með aukinni upplýsingagjöf og bættum samskiptum og virðist sem dregið hafi úr tortryggni.
Ráðuneytið segir að frá því að ný ríkisstjórn tók við í febrúar hafi verið unnið skipulega að þessu verkefni og stór skref tekin. Nýju bankarnir, nú Íslandsbanki, NBI, og Nýja Kaupþing, voru stofnaðir í október í kjölfar þess að gömlu bankarnir féllu. Fjármálaeftirlitið tilkynnti að gömlu bönkunum yrði greitt fyrir eignir sem yfirfærðar voru í nýju bankana umfram skuldir þeirra, en fyrst og fremst var um innstæður sparifjáreigenda að ræða. Greiðslurnar yrðu skuldabréf sem útgefið yrði af nýju bönkunum.
Í upphafi var gert ráð fyrir því að skilmálar skuldabréfanna tækju mið af mati Deloitte á eignum nýju bankanna. Til þess að undirbúa og fara með samningaviðræður við skilanefndir gömlu bankanna og kröfuhafa um þessi skuldabréf voru Þorsteinn Þorsteinsson, og ráðgjafafyrirtækið Hawkpoint ráðin til þessa verks af fjármálaráðuneytinu.
Til viðbótar við verðmat Deloitte á eignum nýju bankanna var talið nauðsynlegt fyrir framgang samningaviðræðnanna að fá nákvæmar upplýsingar um fjárhagsstöðu nýju bankanna, m.a. efnahagsreikninga þeirra og raunhæfar viðskiptaáætlanir sem sýndu að nýju bankarnir yrðu starfshæfar og líffvænlegar einingar sem gætu staðið við skuldbindingar sínar og gætu þar með greitt af fyrrgreindu skuldabréfi.
|
|
Vefrit fjármálaráðuneytisins |



















