Viðskipti
| mbl
| 8.5.2009
| 11:57
Eigið fé Landsafls neikvætt
Eigið fé Landsafls ehf. er neikvætt samkvæmt óendurskoðuðu uppgjöri fyrir síðasta ár. Helsta ástæða þessa er að fjármögnun félagsins er að
stærstum hluta í erlendum gjaldmiðlum og hefur veiking íslensku krónunnar haft neikvæð áhrif á eigið fé félagsins. Landsafl mun ekki birta ársuppgjör sitt fyrir síðasta rekstrarár.
Þann 29. apríl s.l. tilkynnti Landsafl ehf. að félagið myndi ekki birta ársuppgjör sitt fyrir síðasta rekstrarár í lok apríl 2009.
Í tilkynningu til Kauphallar Íslands kemur fram að unnið er að fjárhagslegri endurskipulagningu á félaginu með það að markmiði að endurreisa eiginfjárstöðu þess.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















