Viðskipti
| mbl
| 11.5.2009
| 12:39
Atvinnuleysi 7,6% að meðaltali í ríkjum OECD
Atvinnuleysi mældist 7,6% að meðaltali í ríkjum OECD í mars. Er þetta 0,3% aukning frá febrúarmánuði en 2% aukning á milli ára. Atvinnuleysi mældist 7,6% á Íslandi á fyrsta ársfjórðungi en í mars var skráð atvinnuleysi á Íslandi 8,9%. Er það sama hlutfall og í Bandaríkjunum í apríl mánuði en ekki liggja fyrir tölur um skráð atvinnuleysi á Íslandi í aprílmánuði.
Á evrusvæðinu mældist atvinnuleysi að meðaltali 8,9% en hvergi í ríkjum OECD var atvinnuleysið jafn mikið og á Spáni, 16,5%, á fyrsta ársfjórðungi. Hins vegar er atvinnuleysið minnst í Hollandi á fyrsta ársfjórðungi, 2,7%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















