Engin sala með stofnfjárhluti í Byr
Skilanefnd Landsbankans segir að sala á stofnfjárhlutum í Byr sparisjóði hafi aldrei farið fram því að samþykki skilanefndarinnar hafi skort. Fram kemur í tilkynningu að afstaða nefndarinnar hafi ekki legið fyrir þegar tilkynning var send Byr. Skilanefnd Landsbankans tók málið fyrir og hlaut salan ekki samþykki.
Tilkynningin er eftirfarandi:
Fréttatilkynning frá Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. vegna frétta um að sala hafi átt sér stað á stofnfjárhlutum í Byr sparisjóði.
Sala þessi var háð samþykki Skilanefndar Landsbanka Íslands hf. Afstaða Skilanefndar lá ekki fyrir þegar tilkynningin var send Byr sparisjóði. Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. tók málið fyrir og hlaut salan ekki samþykki nefndarinnar. Salan fór því aldrei fram að því leyti að samþykki Skilanefndar skorti.
Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. hefur farið fram á að Byr sparisjóður breyti stofnfjárskrá sinni til samræmis við ofangreint.
Skilanefnd Landsbanka Íslands hf.“



















