Viðskipti
| mbl
| 11.5.2009
| 15:15
Magalyf frá Actavis á markað
Actavis setti magalyfið Pantoprazole á markað í Þýskalandi, Hollandi og á írlandi, um leið og einkaleyfi frumlyfsins rann út þann 6. maí síðastliðinn. þetta er í fyrsta sinn sem Actavis setur þetta tiltekna lyf á markað undir eigin vörumerki.
Í tilkynningu frá Actavis segir að viðskiptavinir Medis, sölusviðs Actavis sem sér um sölu til þriðja aðila, hefðu sett lyfið um leið á markað í Þýskalandi og Hollandi og hefðu áður markaðssett það í Ungverjalandi og Póllandi.Pantoprazole er meltingarfæralyf af flokki prótonpumpuhemla (PPI), og er ætlað til meðferðar við magasárum, vélindabakflæði og Zollinger-Ellison heilkenni. Pantoprazole Actavis er samheitalyf frumlyfsins Protonix® frá lyfjafyrirtækinu Wyeth.
Pantoprazole Actavis var þróað hjá Actavis á Íslandi og framleitt hjá Actavis á Möltu.
Samkvæmt tölum frá IMS Health seldist frumlyfið fyrir 1,1 milljarð evra innan ESB á árinu 2008, að því er segir í tilkynningu Actavis.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















