Viðskipti
| mbl
| 11.5.2009
| 15:26
Vonbrigði á Wall Street
Helstu hlutabréfavísitölur á Wall Street í New York lækkuðu við opnun markaða í dag. Rúmri klukkustund eftir að viðskipti hófust höfðu Dow Jones og S&P 500-vísitalan hvor um sig lækkað um liðlega 1%. Nasdaq-vísitalan hafði hins vegar hækkað lítillega.
Undanfarna tvo mánuði hafa hlutabréf almennt hækkað nokkuð í verði vestanhafs eftir að hafa náð lágmarki í byrjun marsmánaðar síðastliðins. Þá höfðu bæði Dow Jones og S&P 500 ekki verið lægri í 12 ár og Nasdaq ekki lægri í 6 ár.
Samkvæmt frétt CNN-fréttastofunnar hafi mest að segja um lækkun á hlutabréfavísitölum í dag, að fjárfestar seldu almennt hlutabréf í fjármála- og hrávörufyrirtækjum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















