Engar tilslakanir í burðarliðnum hjá Seðlabanka
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is
Ekki mun koma til frekari tilslakana í gjaldeyrismálum á næstunni en þeirra sem þegar hafa verið kynnt, að sögn Sveins Haralds Øygard seðlabankastjóra. Kemur þetta fram í viðtali sem Bloomberg-fréttastofan tók við hann í Basel í Sviss.
Vísar hann þar til áætlunar Seðlabankans um að leiða saman erlenda krónubréfaeigendur og íslensk fyrirtæki. Eins og fram hefur komið gerir áætlun Seðlabankans ráð fyrir því að erlendir fjárfestar, sem sitji á krónum hér á landi, geti lánað féð til íslenskra fyrirtækja sem hafi tekjur í erlendri mynt. Fyrirtækin gætu þá greitt viðkomandi lán til baka í erlendum gjaldeyri.
Segir hann að erlendir fjárfestar hafi því ekki í önnur hús að venda vilji þeir geta skipt krónum sínum í erlenda mynt.
„Gjaldeyrishöft eru til staðar og þau munu áfram vera eins stíf og nauðsyn krefur og eftirlit verður haft með því að ekki sé farið á svig við þau,“ segir Øygard við Bloomberg. Komi hins vegar í ljós að hægt sé að virkja nýtt fjármagn innan reglurammans verði þær leiðir að minnsta kosti skoðaðar.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna segir hins vegar að eitt mikilvægasta verkefnið í efnahagsmálum næstu hundrað daga sé að vinna markvisst að því að draga úr höftum í gjaldeyrisviðskiptum. Sé það ein forsenda þess að skilyrði til hagvaxtar skapist sem fyrst.
„Trúverðug stefna í ríkisfjármálum er nauðsynleg til að treysta bankakerfið, styðja gengi krónunnar og skapa forsendur fyrir eðlilegum gjaldeyrisviðskiptum,“ segir í sáttmálanum.



















