Tap Landsvaka 274 milljónir króna
Tap Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði Landsbankans, nam 274 milljónum króna á síðasta ári en árið 2007 nam hagnaður Landsvaka 146 milljónum króna.
Í lok ársins 2008 annaðist Landsvaki hf. rekstur 26 sjóða um sameiginlega fjárfestingu samanborið við 29 sjóði í árslok 2007 en á árinu voru stofnaðir 2 nýir sjóðir og 5 sjóðum var slitið. Í árslok nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsvaka 75,5 milljörðum króna samanborið við 251,4 milljarða í árslok 2007.
Eigið fé Landsvaka í árslok nam 142 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 21,5%.
Samið um skatt og NBI leggur félaginu til aukið eigið fé
Landsvaki hf. var samskattaður með Landsbanka Íslands við álagningu þinggjalda á árinu 2008. Samkvæmt lögum um tekjuskatt bera samsköttuð félög sameiginlega ábyrgð á álögðum tekjuskatti. Í þessu fólst að ábyrgð Landsvaka hf. vegna álagningar gat orðið allt að 4,6 milljarðar króna, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.
Félagið hefur verið í viðræðum við skattayfirvöld vegna málsins og hefur náðst samkomulag um að félagið inni af hendi greiðslu sem nemur 460 milljónum króna og losni jafnframt undan frekari skuldbindingum vegna ábyrgðarinnar. Sú greiðsla hefur þegar verið innt af hendi og færð til gjalda í rekstrarreikningi félagsins fyrir árið 2008.
Í framhaldinu hefur embætti Tollstjóra staðfest að Landsvaki hf. beri ekki frekari ábyrgð á greiðslu vegna þessa. Jafnframt hefur NBI hf. samþykkt að leggja félaginu til nýtt eigið fé að fjárhæð 150 milljónum króna til að tryggja að félagið uppfylli áfram ákvæði laga um eigið fé fjármálafyrirtækja. Hefur jafnframt verið tekið tillit til þeirrar hlutafjáraukningar í ársreikningi félagsins fyrir árið 2008.



















