Telja að slakað verði á gjaldeyrishöftum í sumar
Allt bendir nú til þess að byrjað verði að slaka á gjaldeyrishöftunum strax á sumarmánuðum en vísbendingar þess efnis hrannast nú upp, samkvæmt Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.
„Í fyrsta lagi kom það fram í rökstuðningi peningastefnunefndar Seðlabankans á vaxtaákvörðunarfundi bankans í síðustu viku að búast megi við umtalsverðri vaxtalækkun stýrivaxta í byrjun júní en í kjölfarið megi hinsvegar búast við hægara lækkunarferli stýrivaxta.
Þetta gefur til kynna að áætlunin sé lækka vexti umtalsvert en fara svo hægar í sakirnar á meðan slakað verði á gjaldeyrishöftum. Þegar slakað verður á höftunum mun hátt vaxtastig styðja við krónuna og varna henni falli.
Í því ljósi er ekki óeðlilegt að Seðlabankinn vilji halda stýrivöxtum háum á meðan reynsla kemur á hvernig aflétting hafta muni ganga og hvaða áhrif slíkar aðgerðir muni hafa á gengi krónunnar. Þá kom það einnig fram í nýbirtri 100 daga nýrrar ríkisstjórnar að dregið verði úr gjaldeyrishöftum sem ekki er hægt að túlka á annan veg en þann að þann 17. ágúst næstkomandi þegar 100 dagar verða liðnir verði gjaldeyrishöftin slakari en þau eru í dag sem er í samræmi við það sem komið hefur fram hjá Seðlabankanum," samkvæmt Morgunkorni.



















