Áttu undir högg að sækja
Sparisjóðirnir hafa átt undir högg að sækja undanfarin ár í samkeppnisumhverfi sem einkenndist af gróðahyggju og mikilli áherslu á vöxt og útrás, að sögn Ragnars Z. Guðjónssonar, sparisjóðsstjóra Byrs sparisjóðs. Sparisjóðirnir hafi þótt gamaldags og of litlir til að taka þátt í ævintýrinu. Bankarnir hafi hins vegar leikið stórt hlutverk í útrásinni. Nú séu bankarnir hins vegar komnir í eigu ríkisins og sparisjóðirnir njóti nú mun meira trausts meðal einstaklinga og smærri fyrirtækja.
Ákvarðanir sem teknar verða af stjórnvöldum og eftirlitsaðilum á næstu vikum og mánuðum muni hafa mikil áhrif á framtíð sparisjóðanna. Framtíð þeirra sé í raun í höndum þessara aðila. Halda þurfi vel á málum til að mál verði vel til lykta leidd.
Segir hann að staða sparisjóðsins hafi versnað frá áramótum. Vanskil á útlánum aukist mánuð eftir mánuð. Tap Byrs á síðasta ári nam 28,8 milljörðum króna.
Áfram sameignarsjóður
Hlutafjárvæðing Byrs var sett á ís í kjölfar bankahrunsins og segir Ragnar að í ljósi breyttra aðstæðna og þeirra breytinga sem vænta má á löggjöf um sparisjóði telji hann að Byr verði áfram sameignarsjóður í framtíðinni og hagsmunum hans verði ekki þjónað með hlutafjárvæðingu.
Gert er ráð yfir jákvæðri afkomu á þessu ári, þrátt fyrir að rekstur sjóðsins verði í járnum á árinu, að sögn sparisjóðsstjórans Ragnars Z. Guðjónssonar. Segir hann lausafjárstöðu Byrs viðundandi. Viðskiptavinum hafi fjölgað og innlán aukist. Þá geti Byr styrkt lausafjárstöðu sína með sölu íbúðalána til Íbúðalánasjóðs, en sjóðurinn hefur ekki gert það hingað til.
Umfang bankastarfsemi Byrs mun dragast saman á árinu að sögn Ragnars, sem segir mikla vinnu fara nú fram varðandi niðurskurð og hagræðingu í rekstri. Útibúum og afgreiðslustöðvum hefur verið fækkað og þær sameinaðar. Þá hefur 18 hraðbönkum verið lokað. Launakostnaður hafi dregist saman, m.a. vegna fækkunar starfsfólks og launalækkana. Unnið sé að frekari lækkun launakostnaðar. Þá sé stefnt að lækkun markaðs- og sérfræðikostnaðar.



















