Viðskipti
| mbl
| 14.5.2009
| 8:42
Eiga 89,4% hlut í Exista
BBR ehf., einkahlutafélag í eigu bræðranna Lýðs og Ágústs Guðmundssona, á orðið 89,4% hlut í Exista en í síðustu viku rann út tilboð BBR til hluthafa í Exista um kaup á hlutum þeirra í félaginu. Alls tóku 11,5% hluthafa tilboði BBR sem fyrir átti 77,9% hlut í Exista. Samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins hljóðaði tilboðið upp á 0,02 krónur á hlut.
Hluthafar sem tóku tilboðinu fá greitt með reiðufé og fer greiðslan fram eigi síðar en þann 15. maí 2009 í samræmi við skilmála tilboðsins. Ef hlutur BBR hefði farið yfir 90% eftir útboðið hafði félagið áskilið sér rétt til að innleysa það sem eftir stendur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















