Viðskipti
| AFP
| 14.5.2009
| 9:40
Fyrsta tap Sony í 14 ár
Japanska raftækjafyrirtækið Sony var rekið með tapi á síðasta rekstrarári en það hefur ekki gerst í fjórtán ár. Fyrirtækið varar við því að útlit sé fyrir áframhaldandi tap en efnahagskreppan hefur bitnað illilega á japönskum tæknifyrirtækjum.
Nam rekstrartap Sony 227,8 milljörðum jena á rekstrarárinu sem lauk þann 31. mars sl. Árið á undan nam rekstrarhagnaðurinn 475,3 milljörðum jena. Tap Sony nam 98,9 milljörðum jena en árið á undan var hagnaðurinn 369,4 milljarðar jena. Er tapið mun minna heldur en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















