Ætla í samstarf við Kínverja
Rio Tinto er eitt stærsta námu- og álfyrirtæki heims. HO
Hlutabréf í bresk-ástralska námu- og álfyrirtækinu Rio Tinto hækkuðu mikið í verði í kauphöllinni í Sydney í Ástralíu í dag í kjölfar þess að frá því að greint að fyrirtækið muni ganga til samstarfs við kínverska álfyrirtækið Chinalco. Óvissa hefur verið um það samstarf vegna andstöðu hluthafa.
Í tilkynningu frá Rio Tinto segir að staðið verði við það samkomulag sem gert var við Chinalco í febrúarmánuði síðastliðnum, um að kínverska fyrirtækið legði Rio til 19,5 milljarða dollara. Við það mun eignarhlutur Chinalco í Rio Tinto fara í um 18%. Ýmsir hluthafar í Rio Tinto hafa barist gegn þessu samkomulagi þar sem þeir telja að áhrif kínverska álfyrirtækisins á hrávörumarkaði í Ástralíu verði of mikil vegna þessa.
Hlutabréf Rio Tinto hækkuðu um rúm 7% í kauphöllinni í Sydney í dag.
Rio Tinto er móðurfélag álversins í Straumsvík.



















