Viðskipti
| mbl
| 18.5.2009
| 10:23
Krónan stendur í stað
Engin viðskipti hafa verið með krónur á millibankamarkaði það sem af er degi, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka. Nokkur hreyfing hefur þó verið á gengi erlendra gjaldmiðla innbyrðis og því hefur gengi krónunnar gagnvart einstökum myntum breyst.
Hefur krónan styrkst um 0,28% gagnvart Bandaríkjadal og er gengi hans nú 126 krónur. Þá hefur hún styrkst um 0,22% gagnvart evru, sem stendur í 169,8 krónum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















