Viðskipti
| mbl
| 20.5.2009
| 8:49
Hótar að hætta við yfirtöku á BMI
Þýska flugfélagið Lufthansa mun jafnvel hætta við yfirtöku á breska flugfélaginu BMI nema stærsti hluthafi BMI seti aukið fjármagn í rekstur félagsins, samkvæmt frétt Financial Times í dag.
Lufthansa, sem á 30% hlut í BMI, hefur hug á að auka hlut sinn í félaginu í 80%. Telja forsvarsmenn Lufthansa að stjórnarformaður BMI og stærsti hluthafi félagsins, Michael Bishop, eigi að koma með nýtt fjármagn inn í félagið svo það geti haldið rekstri áfram
Fjármálastjóri Lufthansa, Stephan Gemkow, segir að félagið vilji standa fast við kaupin á hlutafénu í BMI en vill að stjórnarformaðurinn standi við samninga sem gerðir hafa verið um að hann seti aukið fjármagn inn í reksturinn. Ef það gerist ekki sé ljóst að róðurinn er þungur hjá félaginu á næstunni.
Bishop ræður yfir 50% hlut í BMI og hefur þrýst mjög á Lufthansa að kaupa sig út úr félaginu. SAS á 20% hlut í BMI.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















