Kaupþing lækkar vexti
Nýja Kaupþing hefur ákveðið að lækka útlánsvexti um 1 til 1,5 prósentustig frá og með 21. maí. Innlánsvextir lækka á bilinu 0,75- 3 prósentustig. Lækkunin tekur bæði til verðtryggðra og óverðtryggðra inn- og útlána.
Þetta er í fimmta sinn sem Nýja Kaupþing lækkar vexti á árinu. Bankinn vill með áframhaldandi vaxtalækkunarferli koma til móts við þau heimili og fyrirtæki í landinu sem berjast við háa greiðslubyrði af skuldum sínum, að því er segir í tilkynningu.
„Yfirdráttarvextir fyrirtækja hafa á árinu lækkað úr 24,55% í 15,75% eða um 8,8 prósentustig og vextir óverðtryggðra skuldabréfa hafa lækkað um 10,4 prósentustig. Vaxtakostnaður á ári af fimm milljón króna yfirdráttarheimild fyrirtækis hefur þannig lækkað um 440.000 frá áramótum.
Innlánsvextir veltureikninga fyrirtækja hafa hins vegar á sama tímabili lækkað minna en útlánsvextir eða um 5,2 prósentustig.
Innlánseigendur beina sjónum sínum í æ ríkari mæli að nýjum ávöxtunarleiðum eins og Ríkisvíxlasjóði. Ríkisvíxlasjóður er verðbréfasjóður rekinn af Rekstrarfélagi Kaupþings banka hf. og samanstendur af víxlum og stuttum skuldabréfum útgefnum af eða með ábyrgð íslenska ríkisins. Að auki er sjóðnum heimilt að fjárfesta allt að 10% í innlánum. Sjóðurinn hentar vel fyrir þá sem vilja ávaxta fé sitt til þriggja mánaða eða lengur og halda sveiflum í ávöxtun í lágmarki. Þá er hægt að innleysa úr sjóðnum með eins dags fyrirvara. Frá stofnun sjóðsins 2. febrúar 2009 til 13. maí 2009 hefur gengi hans hækkað um 3,7%.
Frá því sjóðurinn var stofnaður fyrir um þremur mánuðum hafa um tvö þúsund einstaklingar, lífeyrissjóðir og fagfjárfestar fjárfest í sjóðnum, samtals fyrir á sjöunda milljarð króna," samkvæmt tilkynningu.



















