Unnið að endurfjármögnun lána vegna D’Angleterre
D’Angleterre við Kóngsins Nýjatorg.
Nordic Partners, sem keypti D’Angleterre og fleiri hótel í Kaupmannahöfn árið 2007, vinnur nú að endurfjármögnun lána, sem tekin voru vegna kaupanna. Þá hefur veitingastaðnum Le Coq Rouge á Kong Frederik hótelinu verið lokað.
Þetta kemur fram í danska blaðinu Berlingske Tidende í dag. Þar er haft eftir Jóni Þór Hjaltasyni, einum af eigendum Nordic Partners og stjórnarformanni danska eignarhaldsfélagsins sem á hótelin, að rekstur félagsins haldi áfram þótt Gísli Þór Reynisson, sem var stjórnarformaður Nordic Partners, hafi látist í apríl.
Auk D'Angleterre keyptu Nordic Partners Kong
Frederik hótelið, Hotel Front og veitingastaðinn Copenhagen Corner. Félagið rekur einnig margvíslega matvælastarfsemi í Lettlandi auk þess sem
það keypti tékkneska matvælafyrirtækið Hamé á síðasta ári.
Landsbankinn fjármagnaði kaupin á dönsku hótelunum en eftir íslenska bankahrunið hefur gengið erfiðlega að afla nýrra lána. Að sögn Berlingske er einnig verið að skera verulega niður í rekstrinum í Danmörku og hefur m.a. verið ákveðið að loka veitingastaðnum Le Coq Rouge á Kong Frederik hótelinu og hætta að bjóða upp á heimsendingarþjónustu hjá Copenhagen Corner. Þá hefur rekstur Front hótelins verið leigður til Scandic.
Jón Þór segir við blaðið, að félaginu hafi tekist að endurfjármagna Hamé í Tékklandi gegnum þarlenda banka og unnið sé að endurfjármögnun dönsku hótelanna. Viðræður standi yfir við alþjóðlega banka um málið.



















