Byr mótmælir frétt Telegraph
Byr sparisjóður hefur sent frá sér athugasemd vegna fréttar breska blaðsins Telegraph í dag um sjóðinn og tengsl Karenar Millen við hann en hún er meðal hluthafa í sjóðnum. Segir í athugasemdinni að það sé ekki rétt að sérstök leyndi hvíli yfir lánabókum Byrs og ekki sé rétt að 10 eignarhaldsfélög standi á bak við 80% af lánasafni Byrs.
„Í breska blaðinu Telegraph í morgun er fullyrt að 10 eignarhaldsfélög standi á bak við 80% af lánasafni sjóðsins. Sannleikurinn er sá að 10 stærstu viðskiptavinir Byrs eru með um 10% af heildarútlánum sjóðsins skv. endurskoðuðu ársuppgjöri vegna ársins 2008.
Í greininni er einnig fullyrt að sérstök leynd hvíli yfir lánabókum Byrs og að tilteknir stofnfjáreigendur telji sig hafa hag af því að þannig sé málum háttað. Hér gætir misskilnings því það er skýrt kveðið á um það í íslenskum lögum hvernig skuli fara með slíkar upplýsingar og eru öll íslensk fjármálafyrirtæki undir þau lög sett. Stjórn Byrs er því bundin af lögum og getur ekki upplýst um stöðu einstakra lántaka í sjóðnum," að því er segir í athugasemd Byrs.



















