Viðskipti
| mbl
| 25.5.2009
| 13:13
Atlantic Petroleum á Athugunarlista
Hlutabréf gefin út af færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hafa verið færð á Athugunarlista með vísan til upplýsinga í tilkynningu með uppgjöri félagsins sem birt var dags. 22. maí 2009, um endurfjármögnun félagsins.
Að því er fram kemur í tilkynningu frá Kauphöll var ákvörðunin tekin á grundvelli reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga í Kauphöllinni.
Atlantic Petroleum tapaði 89,7 milljónum danskra króna í fyrra, sem er 13,7 milljónum meira en árið 2007. Þetta jafngildir rúmum 1,7 milljarði íslenskra króna. Árið 2008 var samt fyrsta árið sem fyrirtækið aflaði tekna af olíuframleiðslu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















