Viðskipti
| mbl
| 25.5.2009
| 15:04
Byr ræður starfsmenn SPRON
Byr sparisjóður hefur ráðið til sín þrettán nýja starfsmenn frá SPRON og Sparisjóðabankanum. Þeir starfsmenn sem áður unnu hjá SPRON veita viðskiptavinum í útibúum Byrs þjónustu en starfsmenn frá Sparisjóðabankanum sinna verkefnum er varða erlenda greiðslumiðlun og fjárstýringu, áð því er fram kemur í tilkynningu frá Byr.
Á þriðja hundrað manns misstu vinnuna í Sparisjóðabankanum og SPRON í kjölfar þess að Fjármálaeftirlitið (FME) tók yfir starfsemina hjá báðum fyrirtækjum í mars síðastliðnum. Kaupþing réð síðan hluta starfsmanna eftir yfirfærslu innstæðna frá SPRON til Kaupþings. Einnig voru nokkrir starfsmenn ráðnir yfir til MP banka, sem hóf nýlega viðskiptabankaþjónustu fyrir einstaklinga.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















