Viðskipti
| Morgunblaðið
| 25.5.2009
| 7:30
| Uppfært
7:56
CCP ríður á vaðið í útgáfu
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is
Leikjaframleiðandinn CCP, sem á og rekur fjölnotendatölvuleikinn EVE Online, hefur ákveðið að nýta heimild Seðlabankans til að gefa út skuldabréf í Bandaríkjadölum gegn láni í íslenskum krónum.
Fleiri fyrirtæki hafa lýst yfir áhuga á slíkri útgáfu, Marel, Össur og Norðurál þar á meðal.
Hefur CCP fengið heimild til skuldabréfaúgáfu fyrir 2,5 milljarða króna, en til að byrja með verða bréf að fjárhæð 1,5 milljarðar seld. MP banki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna.
Árið 2007 gaf CCP út sitt fyrsta skuldabréf og var féð, sem fékkst við sölu þess, notað til frekari vöruþróunar. Meðal annars við þróun á nýjum tölvuleik, World of Darkness. Nýja skuldabréfaútgáfan verður m.a. notuð til þess að endurgreiða þetta bréf.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















